Þetta er níunda árið í röð sem þeir fækka fötum á dagatali til styrktar góðu málefni. Dagatöl þeirra árin 2015 og 2016 voru söluhæst allra dagatala þar í landi og einnig hafa þau verið pöntuð til Bandaríkjanna, Ástralíu, Englands, Þýskalands, Brasilíu, Frakklands, Hong Kong og Suður-Afríku.
Í dagatalinu fyrir árið 2018 eru bændur frá Cork, Kilkenny, Wexford, Tipperary, Roscommon, Derry og Dublin. Þeir eru allir skyrtulausir og sumir deila sviðsljósinu með geitum, hænum, hundum, kindum, kanínum og svínum.