Fólk var ýmist á því að hann væri blár og svartur, eða hvítur og gylltur. Svo var reyndar einn og einn sem sá einhverja allt aðra liti.
Og nú er komin ný flík sem veldur deilum um hvernig hún er á litinn. Að þessu sinni eru það strigaskór og eru sumir á því að þeir séu bleikir og hvítir, á meðan aðrir segja þá gráa og grænbláa.
Myndinni var deilt í Facebook í Bretlandi, sem telur 98 þúsund meðlimi og á stuttum tíma höfðu yfir 1000 athugasemdir verið ritaðar við færsluna og voru konur ekki sammála um í hvaða litum skórinn væri.
Hvað finnst þér, hvernig er skórinn á litinn? Deildu með vinum og athugaðu hvort að þeir eru sammála þér.