Lagið er á ensku, með dassi af helstu orðunum, sem ferðamenn þurfa að læra, á íslensku. Lagið heitir The Hardest Karaoke Song in the World og líklega munu margir ferðamenn eiga fullt í fangi með að bera fram íslensku orðin.
Myndbandið er hins vegar stórskemmtilegt og flott eins Steinda jr. er von og vísa.
Nokkrir ferðamenn hafa þegar spreytt sig við sönginn, með misjöfnum árangri.