Helstu bloggurum, ritstjórum vef- og prentmiðla sem fjalla um heimili og hönnun og öðrum gestum var boðið í IKEA að sjá línuna, sem er nýjasta stolt IKEA.
Kristín Lind Steingrímsdóttir markaðsstjóri IKEA bauð gesti velkomna og kynnti línuna ásamt öðrum starfsmönnum IKEA. Vel var látið af línunni, sem er fjölbreyt og á góðu verði.
Boðið var upp á léttar veitingar og gestir leystir út með gjöf úr vetrarlínu IKEA.
YPPERLIG línan stendur fyrir einfaldleika sem uppfyllir nútímaþarfir og -langanir. Þetta er samtímahönnun sem jafnframt er tímalaus – eins og vörurnar sjálfar. Línan inniheldur glæsilegt úrval af vörum.
YPPERLIG línuna má skoða í heild sinni hér.