Þær hafa fengið til liðs við sig níu hljómsveitir sem munu flytja tónlist á viðburðinum auk þess sem sálfræðingar munu leiða umræðu um geðheilbrigði.
Hljómsveitirnar sem koma munu fram eru:
World Narcosis
Mighty bear
We made god
Skaði
Great Grief
Dynfari
Geiri & Dagur úr Churchhouse Creepers
Aeterna
Atómstation
Á milli hljómsveita mun Andrea Jónsdóttir rokkamma íslands koma og segja nokkur vel valin orð ásamt Hönnu frá 1717.
Húsið opnar kl. 19, en dagskrá byrjar kl. 19.30 og stendur til kl. 01.
Sálfræðingarnir Kristján Helga og Tómas munu opna dagskrána og jafnframt leiða umræðu um geðheilbrigði.
Minningarleiði verður sett upp þar sem fólk getur komið með myndir, blóm eða persónulega hluti til að minnast þeirra sem þeir hafa misst.
Frítt verður inn á tónleikana en frjáls framlög eru vel þegin. Framlög munu renna óskert til sjálfsvígsforvarnarsamtakanna Pieta.
„Við hvetjum alla þá sem láta geðheilsu sig varða til að koma og sýna samstöðu á þessu kvöldi. Þetta er málefni sem snertir okkur öll sem eitt. Komum saman til að syrgja, sakna, vera reið, hættum ekki að hneykslast og nýtum þessa orku til að gera hvert öðru gott! Okkur er ekki sama, þið eruð öll dýrmæt og við viljum ekki missa fleiri. Farið vel með ykkur elsku vinir.“
Ein þeirra hljómsveita sem stígur á stokk í kvöld er Atomstation. „Við erum stoltir þátttakendur í þessu verkefni og kunnum þeim Bylgju og Elínu bestu þakkir fyrir að koma því í kring. Sjálfir erum við áhugamenn um geðheilbrigði, eða öllu heldur geðóheilbrigði, og teljum þörf á áframhaldandi umræðu um bætt geðheilbrigðiskerfi og frekari úrlausnir fyrir fólk í geðrænum vanda. Fyrsta platan okkar fjallaði til að mynda að miklu leyti um geðveiki og við trúum að virk umræða í samfélaginu sé ómissandi þáttur í að koma okkur öllum á fórdómalausari og betri stað þar sem við verðum færari til að hjálpa hvert öðru,“ segir Prins Grímsson gítarleikari í Atomstation.