Hrafnhildur Erlingsdóttir sem oftast er kölluð Sabbó birti á Facebooksíðu sinni krúttlegt myndband af kettinum sínum honum Poppkeli.
Poppkell hafði verið að vesenast á stofuborðinu og virtist vera smeikur við eitthvað svo Sabbó tók upp símann sinn og tók myndband af honum. Poppkell hélt áfram að mjaka sér áfram á stofuborðinu þegar honum brá svona svakalega að hann tók heljarstökk fram af borðinu. Myndbandið er ofurkrúttlegt og má sjá hér að neðan: