Við á Bleikt erum að tapa okkur af spenningi yfir því að Reykjavík Fashion Festival verði haldið á þessu ári, nánar tiltekið 23. til 26.mars næstkomandi. RFF N°7 er haldið af ótrúlega flottu teymi og hlökkum við mikið til sjá hvað íslensku hönnuðirnir ætla að kynna á sýningunum í Hörpu. Þátttaka á RFF er æðislegt tækifæri fyrir hönnuði að kynna sig fyrir heiminum með jákvæðum hætti.
Við vildum minna á að enn er tími fyrir áhugasama hönnuði að sækja um að taka þátt í RFF N°7. Umsóknarfresturinn rennur út á miðnætti í kvöld, laugardaginn 7.janúar. Fagnefnd úrskurðar fer svo yfir umsóknirnar og ákveður hvaða umsækjendur fá að taka þátt. Bleikt mun auðvitað fjalla meira um hátíðina næstu vikur og kynna hæfileikaríka fólkið sem tekur þátt í að gera þennan flotta tískuviðburð að veruleika.
Hægt er að sækja um þátttöku á heimasíðu RFF HÉR!