Kylie Jenner hlaut fyrst frægð sem litla systir Kim Kardashian í raunveruleikaþáttum fjölskyldunnar, Keeping up with the Kardashians. Hún hefur þó nýtt sér athyglina vel síðustu ár og sett á markað fatalínur og margt fleira. Hún stofnaði svo sitt eigið snyrtivörumerki, Kylie Cosmetics, og hefur þetta allt gengið svo vel að Forbes setti hana á listann 30 undir þrítugu á þessu ári, í flokknum Smásala og netverslun.
https://www.instagram.com/p/BO0NlONBQ0u/?taken-by=kyliejenner
Að komast á lista tímaritsins Forbes telst mikill heiður en það vekur athygli að Kylie er eini táningurinn sem komst á listann í sínum flokki. Nýjasta snyrtivaran frá Kylie er 12 augnskugga palletta með spegli og bursta. Er talið að þetta muni seljast hratt upp þegar þetta byrjar í sölu eins og allar vörur hennar gera þegar þær koma í netverslunina í fyrsta skipti. Það eru ekki margir undir tvítugu sem ná svona mögnuðum árangri og gróða með eigin fyrirtæki.
https://www.instagram.com/p/BOyOw8ch6b2/
Hún byrjaði rólega með varaliti og varalitablíanta en hefur jafnt og þétt stækkað fyrirtæki sitt og er nú orðinn snyrtivörumógúll með viðskiptavini um allan heim. Meira en 82,6 milljónir fylgja Kylie i á Instagram sem er ótrúlega flottur árangur en Kim toppar hana samt með rúmlega 89,6 milljón Instagram fylgjendur. Kylie er aðeins 19 ára gömul en er nú samkvæmt Forbes næsttekjuhæst í sinni fjölskyldu á eftir systur sinni Kim þrátt fyrir að vera yngst í systkinahópnum. Það verður spennandi að fylgjast með því hvað hún setur næst á markað.