Í gær birti Kim Kardashian West fyrstu Instagram myndina síðan hún var rænd í París fyrir 13 vikum síðan. Hún birti fallega fjölskyldumynd af sér með eiginmanni og börnum. Við myndina skrifaði hún einfaldlega „fjölskylda.“ Mikið hefur verið rætt um samband Kim og Kanye eftir að hann var lagður inn vegna geðrænna vandamála, slúðurblöðin vilja mörg meina að Kim ætli að sækja um skilnað en hún hefur ekkert sagt sem gefur það til kynna.
Einnig birti Kim á netinu í gær fallegt fjölskyldumyndband en þar má sjá Kim, Kanye, North og Saint í sínu daglega lífi en einnig sjást þar fleiri fjölskyldumeðlimir. Þetta myndband fékk hún í jólagjöf frá Kanye en þar sést Kim fella tár yfir öðru myndbandi sem hann gerði á dögunum og frumsýndi á tónleikum hjá sér. Þessi jólagjöf er ótrúlega einstök, persónuleg og falleg svo hún er eiginlega tilvalin fyrir konu sem á allt. Í myndbandinu sem sjá má hér fyrir neðan er Saint æfa sig að ganga og margt fleira.
https://www.youtube.com/watch?v=JdGJMnLstCo