Hvað væri betra en byrja nýja árið með smá gönguferð í góða veðrinu og útbúa síðan þetta ljúffenga heita súkkulaði. Við mæðgur útbjuggum þetta um daginn og verð ég að segja að sykurpúðarnir komu skemmtilega á óvart. Ég er mikil rjómakona þegar kemur að heitu súkkulaði en þetta var frábærlega bragðgóð tilbreyting.
(3-4 bollar eftir stærð)
Setjið allt nema sykurpúðana í pott og hitið á meðalháum hita þar til vel blandað/bráðið og hrærið vel í allan tímann. Hellið síðan um ½ bolla kakó, setjið sykurpúða á milli, svo aftur kakó og aftur sykurpúða og njótið.