Nude varalitir koma misvel út á fólki eftir húðlit og náttúrulegum lit varanna. Það er þó einn nude varalitur sem virðist vera flottur á öllum sem prófa hann. Það kemur því ekki á óvart að hann er langvinsælasti nude varaliturinn á síðunni Pinterest. Það sem er svo frábært við þennan fallega varalit er að hann er á frábæru verði OG hann fæst á Íslandi.
Varaliturinn sem flestir vista og deila á Pinterest er NYX Cosmetics Soft Matte Lip Cream í litnum London. Liquid varalitir hafa verið gríðarlega vinsælir upp á síðkastið en NYX varalitirnir eru kremaðir og mjúkir en haldast samt alveg ótrúlega vel. Liturinn London er nude með smá bleikum undirtón og er flauelsmjúkur og mattur þegar hann þornar.
NYX vörurnar fást í Hagkaup í Smáralind og Kringlunni!