Kardashian/Jenner fjölskyldan hefur verið síðustu daga í fríi á Costa Rica og auðvitað voru myndavélarnar með í för og allt tekið upp fyrir raunveruleikaþátt þeirra Keeping Up With the Kardashians. Fjölskyldan gisti í glæsivillu sem kostar tæpar tvær milljónir króna nóttin. Væntanlega fá þau þó afslátt þar sem dvöld þeirra og þátturinn er fínasta auglýsing.
Í byggingunni eru átta ótrúlega flottar svítur svo allir hafa nóg pláss til að vera í friði ef þess er óskað. Í húsinu er bíósalur, líkamsrækt, sundlaug og allt sem fjölskyldan er vön að hafa á eigin heimilum í Kaliforníu. Húsið er innan við hundrað metrum frá ströndinni en þau fengu að vera alveg í friði fyrir utan nokkra ágenga paparazzi ljósmyndara sem náðu einhverjum myndum af þeim. Hér fyrir neðan má sjá myndir af aðstöðu þeirra í ferðinni en þau mættu þangað saman á einkaflugvél.
Fjölskyldan stoppaði aðeins í viku en þau einu sem komust ekki með voru Kanye West, Kendall Jenner og Tristan Thomson kærasti Khloé. Svo virðist sem Rob hafi ekki mætt með Blac Chyna og Dream dóttur þeirra en hann er ekki vanur því að koma með í svona ferðalög. Auk tökuliðsins voru með þeim í för förðunarfræðingar, hárgreiðslufólk, ljósmyndari, barnfóstrur og allavega einn einkaþjálfari. Hér eru nokkrar myndir sem þau hafa birt á samfélagsmiðlum úr þessu draumafríi.
https://www.instagram.com/p/BPxyzYdFNov/
https://www.instagram.com/p/BP5v5dElyRL/?taken-by=styledbyhrush
https://www.instagram.com/p/BP6S6ogDEnp/
https://www.instagram.com/p/BP3TdW9ho7e/
https://www.instagram.com/p/BP24JxPgoCO/?taken-by=kinggoldchains
https://www.instagram.com/p/BP5g2IsFT25/
https://www.instagram.com/p/BP5TNZYBzsu/
https://www.instagram.com/p/BP6nqBfFG5X/?taken-by=kimkardashian
https://www.instagram.com/p/BP1K_FfDPYR/?taken-by=makeupbymario
https://www.instagram.com/p/BP1GeNhljNS/
https://www.instagram.com/p/BPyNYOPAvRk/?taken-by=kinggoldchains
https://www.instagram.com/p/BP1mym0BbN3/
https://www.instagram.com/p/BPyMO1ODDgw/?taken-by=letthelordbewithyou
https://www.instagram.com/p/BP0__7mDQfV/