Í gær fór fram kepnnin Ungfrú heimur (Miss Universe) þar sem Hildur María Leifsdóttir keppti fyrir Íslands hönd. Það var Iris Mittenaere Ungfrú Frakkland eða Miss Universe France sem hlaut kórónuna og titilinn Miss Universe þetta árið. Þykir það mikill heiður að vera valin sú fegursta í heimi en Iris grét á sviðinu þegar hún hafði fengið kórónuna sína. Iris er 24 ára og nemi í tannskurðlækningum.
Í öðru sæti var Raquel Pelissier Ungfrú Haítí og í þriðja sæti var Ungfrú Kólumbía, Andrea Tovar. Hildur María komst ekki í hóp þeirra efstu 13 sem kepptu í úrslitum Miss Universe í nótt. Fyrir lokakvöldið varð Hildur María fyrir því að förðunarfræðingurinn sem farðaði hana gerði það ekki nógu vel. Hún lét það sko ekki stoppa sig og þreif augnförðunina af sér og farðaði sig aftur sjálf. Núna í morgun setti Hildur María á Snapchat síðu sína „Frjáls eins og fuglinn“ og var að fá sér eitthvað gott að borða. Hildur María var glæsileg í keppninni og má vera ótrúlega stolt af sinni þátttöku.