Þegar tveggja ára tvíburabræðurnir Bowdy og Brock voru að leika sér í herbergi sínu tóku þeir upp á því að klifra ofan í kommóðuskúffur. Kommóðan var ekki veggfest og valt því á gólfið yfir strákana. Brock festist undir henni og náði ekki að losa sig en þá kom Bowdy bróðir hans til bjargar. Myndband af atvikinu náðist á myndavél á barnapíutæki í herbergi drengjanna en í Bandaríkjunum er algengt að foreldrar fylgist með börnum sínum með þeim hætti á nóttunni.
Foreldrarnir heyrðu kommóðuna ekki detta en þegar móðir drengjanna kom inn í herbergið sá hún hana á hlið á gólfinu. Strákarnir létu eins og ekkert væri að svo það var ekki fyrr en þau horfðu á upptökuna að foreldrarnir sáu hvað gerðist. Rick Shoff faðir drengjanna ákvað eftir mikla umhugsun að birta þetta myndband á Facebook síðu sinni, til þess að minna fólk á að veggfesta allar kommóður.
„Við erum svo þakklát fyrir tengsl þessara tvíbura. Við vitum að Bowdy var ekki einn að færa þessa kommóðu af Brock. Það er mikil blessun að hann sé í lagi.“
Í nóvember sögðum við frá því á Pressunni þegar ófest kommóða með flatskjá féll ofan á tveggja ára íslenskan dreng. Sem betur fer fór það betur en á horfði en María móðir drengsins hvatti alla til þess að forðast að gera sömu mistök og hún.
22 mánaða drengur lést eftir að hann fékk IKEA MALM kommóðu yfir sig