Spenningurinn fyrir Beauty and the Beast myndinni er alveg að ná hámarki. Disney heldur okkur á tánum með myndum frá settinu og Emmu Watson í hlutverki Fríðu og glæsilegri stiklu úr myndinni. Nú hafa þau sett spenninginn á annað stig með útgáfu af plakötum af karakterum myndarinnar. Það eru þó tæpir tveir mánuðir í að myndin kemur út en hún verður frumsýnd 17.mars, þannig þangað til þá mælum við með að horfa á teiknimyndina allaveganna einu sinni og skoða þessar myndir hér fyrir neðan.
Sjá einnig:
Fyrsta myndabrotið úr Beauty and the Beast með Emmu Watson í aðalhlutverki
Fyrstu myndirnar af Emmu Watson sem Fríða í Beauty and the Beast