Hildur María er um þessar mundir í Filippseyjum að keppa í Miss Universe fyrir hönd Íslands. Hildur er stórglæsileg og hefur að sjálfsögðu hlotið verðskuldaða athygli fyrir bæði einstaka fegurð sína og geislandi persónuleika. Nú standa netkosningar yfir og getum við öll hjálpað henni að ná langt í keppninni með því að kjósa hana.
Það er hægt að kjósa Hildi á fjóra vegu. Með því að niðurhala Miss U smáforritinu eða Vodi smáforritinu, tísta með því að nota #MissUniverse kassamerkið og #Iceland, eða fara inn á þessa vefsíðu og kjósa.