Leikkonan Scarlett Johansson og Romain Dauriac eru skilin eftir tveggja ára hjónaband. Það var People sem sagði fyrst frá þessu en samkvæmt heimildarmanni tímaritsins hættu Scarlett og Romain saman síðasta sumar. Þau giftu sig árið 2014, skömmu eftir að þau eignuðust dótturina Rose Dorothy.
Saman eiga þau fyrirtækið Yummy Pop en verslanir þeirra selja margar gerðir af poppkorni. Scarlett var áður gift leikaranum Ryan Reynolds frá 2008 til 2010.