Tisha og Kevin Beauchmin eiga saman fimm börn. Þegar nágrannakonan þeirra var dauðvona bað hún hjónin að taka að sér börnin sín þrjú, svo þau þyrftu ekki að fara á fósturheimili. Tisha hafði sjálf búið á munaðarleysingjahæli og verið sett í fóstur sem barn svo því vildi hún taka að sér börnin. Þetta fallega góðverk hennar vakti athygli og ákvað FOX5 Surprice Squad að koma fjölskyldunni aðeins á óvart.