Lady Gaga sér um skemmtiatriðið í hálfleik Super Bowl þetta árið. Hún söng þjóðsönginn á þessum vinsæla íþróttaviðburði á síðasta ári en nú fær hún að eiga sviðið í heilar 12 mínútur í hálfleik. Margir aðdáendur hennar bíða spenntir eftir þessu enda er sýningin í hálfleik oftast stórkostleg. Leikurinn fer fram sunnudaginn 5.febrúar næstkomandi. Pepsi birti stutt myndband á Twitter af undirbúningnum fyrir atriði Lady Gaga. Þar segir hún meðal annars:
„Það verður einstakt því ég er búin að undirbúa þetta síðan ég var fjögurra ára. Svo ég veit alveg hvað ég ætla að gera.“
Hold on to your hats! Your first look #BTS of #PepsiHalftime as @RICHYSQUIRREL gets @LadyGaga‘s dancers ready to make us 🙀🙀🙀 Feb 5th! pic.twitter.com/NlteGrS7Wa
— Pepsi™ (@pepsi) January 18, 2017