Leikkonan Lily Collins leikur stúlku sem þjáist af átröskun í kvikmyndinni To The Bone. Lily þurfti að grennast fyrir hlutverkið en það reyndist henni erfitt andlega. Hún skrifaði á dögunum bók en þar kemur fram að hún barðist sjálf við átröskun.
https://www.instagram.com/p/BL8sKDnhoIz/
Lily segir að það sé mikill léttir að opna sig um þetta leyndarmál sem hún hefur ekki deilt með aðdáendum sínum áður. „Ískalt inn að beini en líður svo frjáls. Þetta er svo stórt augnablik fyrir mig. Að opna mig um fortíð mína, vera opin, að hafa ekkert af skömm eða eftirsjá yfir minni reynslu,“ skrifaði Lily við mynd sem hún birti á Instagram í gær. Þar segir hún að það væri ótrúlega gefandi að segja frá sögu sinni af átröskunum og hversu persónuleg þessi kvikmynd væri í ljósi þess.
https://www.instagram.com/p/BPi1y1agyPw/
Lily er ótrúlega stolt af því að hafa tekið þátt í þessari mynd. Fyrir hlutverk sitt þurfti hún að léttast töluvert en gerði það undir ströngu eftirliti næringarfræðings. Hún segir að það hafi verið erfitt fyrir sig andlega að léttast aftur og fara aftur á þennan stað, andlega og líkamlega. Segir hún að þetta hafi verið eins og að fara aftur í tímann.