Í mannkynssögunni eru til mörg dæmi af öflugum konum um allan heim sem koma saman og berjast fyrir jafnrétti. Hér eru myndir frá mótmælum kvenna víðsvegar um heiminn í gegnum söguna sem Cosmopolitan tók saman. Það má hins vegar ekki gleyma íslenskum konum en þær eiga heiðurinn á stærstu fjöldamótmælum Íslandssögunnar. Neðst í greininni er fjallað um mótmæli íslenskra kvenna og hvernig þau hafa verið innblástur fyrir mótmæli kvenna í öðrum löndum.
1957
1963
1965
1968
1969
1969
1969
1969
1970
1970
1970
1970
1970
1970
1971
1974
1974
1974
1976
1977
1980
1986
1989
Tíundi áratugurinn
Tíundi áratugurinn
2001
2005
2007
2007
2009
2015
2015
2015
2016
2016
1970
Sjötti áratugurinn
Íslenskar konur eiga heiðurinn á stærstu fjöldamótmælum Íslandssögunnar þegar konur um allt land lögðu niður störf um miðjan dag til að mótmæla kynbundnum launamun þann 24.október 1975. Talið er að 25 þúsund konur komu saman í miðbæ Reykjavíkur til að mótmæla. Þessi sögulegu mótmæli hafa orðið að fyrirmynd fyrir mótmæli kvenna í öðrum löndum, eins og þegar pólskar konur fóru í allsherjar verkfall 3.október 2016 til að mótmæla lagafrumvarpi sem kvað um að banna fóstureyðingar með öllu, nema ef líf móðurinnar væri í hættu. Einnig var íslenska kvennaverkfallið innblástur mótmæla kvenna í Frakklandi þegar þær lögðu niður störf 7.nóvember 2016 til að mótmæla kynbundnum launamun og ofbeldi.
Í fyrra var boðað til kvennaverkfalls þann 24.október undir slagorðinu „Kjarajafnrétti strax“ og voru konur hvattar til leggja niður vinnu klukkan 14:38 til að mótmæla kynbundnum launamun. Mótmælin fengu heimsathygli og komust íslenskar konur á lista Buzzfeed fyrir mest „badass“ konur 2016.
Hér eru nokkrar myndir frá mótmælum íslenskra kvenna árið 1975 og 2016.
1975 – Mynd/Loftur Ásgeirsson
1975 – Mynd/Loftur Ásgeirsson
1975 – Mynd/Loftur Ásgeirsson
1975 – Mynd/Vísir
Mynd/Vísir
Mynd/Vísir