Það er góð ástæða fyrir því að foreldrar fara með börnin sín í klippingu frekar en að rétta þeim skærin sjálf og leyfa sköpunargáfunni að ráða ríkjum. Í fyrsta lagi þá getur það auðvitað verið hættulegt fyrir börn að klippa eða raka sig sjálf. Í öðru lagi þá er útkoman alltaf hræðileg, eða frekar hræðilega fyndin… Það fer eftir því frá hvaða sjónarhorni þú ert að horfa á þetta, sem foreldri eða utanaðkomandi aðili. Skoðaðu myndirnar hér fyrir neðan sem sýna hvað gerist ef börn ákveða að klippa sjálf á sér hárið. Sum börnin eru hæstánægð með útkomuna en önnur eru strax orðin full eftirsjár.