Það er ekkert leyndarmál að Ellen Degeneres er mikill aðdáandi Barack Obama og eiginkonu hans Michelle. Hún gerði myndband með nokkrum hápunktum þeirra í forsetatíð Obama og er öruggt að segja að það er greinilegt að þau skemmtu sér vel saman. Ellen Degeneres segir í upphafi myndbandsins að Barack Obama hafi breytt lífi hennar.
„Ég vil þakka honum persónuleg fyrir að breyta lífi mínu. Ég er löglega gift kona þökk sér honum, og eiginkona mín er það einnig.“
Barack Obama veitti Ellen DeGeneres frelsisorðuna fyrir baráttu sína fyrir réttindum samkynhneigðra. Sjálfur átti hann þátt í því að lögleiða hjónaband samkynhneigðra í Bandaríkjunum. Í tilefni þess að síðasti dagur Obama fjölskyldunnar var í gær ákvað Ellen að gera yndislegt myndband til heiðurs Barack og Michelle. Myndbandið sýnir meðal annars skemmtilegustu augnablikin þar sem Obama hjónin komu fram í The Ellen DeGeneres Show.