Auglýsing fyrir eign til sölu hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum í dag, bæði fyrir útlit eignarinnar og einstaklega skemmtilegt götuheiti. Eignin er einbýlishús á tveimur hæðum með auka íbúð og er staðsett á Undralandi 6. Í byrjun árs 2016 var eignin að miklu leyti endurnýjuð, þar á meðal voru heimilistæki sem og gólfefni endurnýjuð. Fyrir áhugasama verður opið hús mánudaginn 23.janúar kl 17:00 til 17:30.
Til að skoða fleiri myndir af eigninni kíktu hér.