Taylor Swift á hugsanlega krúttlegasta tvífara í heimi en það er hin sjö ára gamla Xia Vigor. Hún kom fram í sjónvarpsþættinum Your Face Sounds Familiar Kids frá Filipseyjumsem sem var sýndur um helgina. Þátturinn er söngva- og eftirhermukeppni sem gengur út á að krakkar fara í gervi uppáhalds söngvaranna sinna og koma fram svo sem þau.
Frammistaða Xia sló í gegn en henni tekst meistaralega að herma eftir Taylor Swift. Það er eiginlega bara eins og hún sé minni útgáfa af Taylor. Taktarnir, svipbrigðin og sjálfsöryggið sem hún geislar af í myndbandinu er alveg eins og hjá Taylor.
Xia er kunnug sviðsljósinu, hún vann hæfileikakeppnina Mini Me fyrir frammistöðu sína sem Selena Gomez eftirherma við lagið Love You Like A Love Song þegar hún var aðeins fimm ára gömul. Þetta kemur fram á fréttavef Huffington Post. Horfðu á frammistöðu Xia í myndbandinu hér fyrir neðan.