Ljósmynd sem tímaritið InStyle birti á Instagram af þeim stöllum Hailey Baldwin, Kylie og Kendall Jenner hefur vakið athygli fólks sem stendur hreinlega á gati. Myndin var tekin í eftirpartýi í kjölfar Golden Globe verðlaunanna sem veitt voru á dögunum. Það sem vakið hefur athygli er enginn veit hvað orðið hefur af öðrum fæti Kendall.
Myndina má sjá hér neðar en hún minnir óneitanlega á sambærilega sjónhverfingu sem skók internetið fyrir fáeinum vikum. Sú mynd vakti ekki síst athygli hér á Bleikt en þar mátti sjá sex vinkonur saman í sófa – en ein þeirra virtist ekki hafa neina fætur.
Í athugasemdum við ljósmyndina af Kendall segja margir að fótleggur hennar sé einfaldlega falinn á bakvið kjólinn en hún sé með krosslagðar lappir. Aðrar myndir frá þessu kvöldi sanna í það minnsta að hún hefur tvo fætur, svo við þurfum ekki að hafa neinar áhyggjur af því.