Ragnhildur og Margrét Weisshappel eru listaháskólagengnar systur, Ragga er myndlistarmaður og Magga grafískur hönnuður. Það sem tengir þær alveg sérstaklega er Hillbilly, síamstvíburinn þeirra beggja. „Hún tengir okkur saman,“ sögðu þær systur í samtali við Bleikt. „Hillbilly er góð blanda af okkur, hugmyndaríkari og hugrakkari en við í sitthvoru lagi.“
Ef lesandinn kemur alveg af fjöllum, er kannski vert að útskýra að Hús og Hillbilly er vefrit sem varpar ljósi á íslenska myndlistarmenn og starf þeirra.
„Hillbilly spyr þá fullt af spurningum til að komast að því hvað þeirra veruleiki snýst um. Vefritinu er ætlað að bæta servíettu í servíettusafn íslenskrar myndlistar. Hillbilly dæmir ekki, gefur ekki stjörnur né gagnrýnir. Hún vill fræðast og fræða, ekki græða.“
Í dag inniheldur vefritið þrjá flokka:
og
„Hugmyndin kviknaði fyrir um ári síðan þegar við sátum með Hillbilly yfir bjór, á sama hátt og svo margar hugmyndir kvikna, veltum fyrir okkur gangi lífsins og hvar ástríða okkar lægi. Hvað höfum við fram að færa? Hillbilly stakk þá uppá þessu, að taka viðtöl við myndlistarmenn á vinnustofum þeirra. Við vorum sammála að það bráðvantaði ljósvörpun á þeirra miklu og góðu vinnu. Við systur tókum vel í þetta og og hófumst strax handa. Fórum beinustu leið útúr okkar þægindazóni og inn til listamanna. Nú er vika síðan við Hillbilly fórum enn lengra út og sýndum almenningi afrakstur heimsóknanna.“
„Takk. Engin fyrirmynd. Eða jú, örugglega fullt. Annars erum við bara að reyna að koma sjónarmiðum myndlistarmannanna sem við heimsækjum sem best til skila. Okkur er mikilvægt að hafa fullkomið jafnvægi – að bera virðingu fyrir alvarleika myndlistarinnar en hafa þetta ekki of hátíðlegt, eða leiðinlegt. Samt ekki of skemmtilegt enda myndlistin alls ekkert grín.“
Vefritið fór í loftið 11. janúar. „Bara fyrir korteri,“ eins og systurnar segja. „Við munum halda áfram okkar góða starfi eins og pólitíkusarnir myndu segja. Á næstu mánuðum viljum við ná tali af sem flestum myndlistarmönnum. Dunda okkur við vefritið. Internetið er svo dásamlegt. Við höfum líka áhuga á að kynna listina fyrir heiminum með því þýða viðtölin yfir á ensku, frönsku og fleiri tungumál. Það er Hillbilly hjartans mál að lesa upp viðtölin eins og í hljóðbók svo fólk sem sér illa eða ekki geti notið.“
segja systurnar að lokum.