Harry prins var viðstaddur Invictus Games í Toronto Kanada á dögunum. Á meðan Harry spjallaði við sessunaut sinn og naut þess að borða poppkorn nýtti hún Emily Henson tækifærið og laumaðist í popppokann hjá honum.
Emily litla hafði engar áhyggjur af því að Harry er konungborinn og gæddi sér á gómsætu poppinu. Harry tók ekki strax eftir því að Emily var að næla sér í popp hjá honum, en viðbrögð hans við því þegar hann áttaði sig á því eru vægast sagt krúttleg.
Myndband af atvikinu má sjá hér að neðan: