Sem er vissulega rétt því Swift notaði hluta af lagi þeirra í sínu og með tvíti þökkuðu meðlimir Right Said Fred henni fyrir að hafa endurskapað lag þeirra.
Meðlimir Right Said Fred hafa nú gefið út blöndu af lögunum. „Við vorum í stúdíóinu með nýjan trommara og bassaleikara og vorum bara að prófa nýjar hugmyndir og nýja takta,“ segir Fred Fairbrass í viðtali við Billboard.
„Við byrjuðum að spila I´m Too Sexy og síðan þróaðist spilið út í blöndu af okkar lagi og lagi Swift. Þetta hljómaði bara vel þannig að við ákváðum að hljóðrita það og taka upp á myndband um leið.“
Hér eru síðan lögin í upphaflegum útgáfum.