Mæðgurnar Glenn Close og Annie Starke, ásamt hundunum þeirra, leika saman í nýrri auglýsingu fyrir fatahönnuðinn Stellu McCartney.
Þær bregða á leik, dansa og grínast saman.
„Við tökum okkur ekkert of alvarlega, svona dags daglega og við náum stríðnispúkanum út í hvor annarri. Við erum mjög nánar líka, þannig að við þurftum ekkert að leika í auglýsingunni,“ segir Close í viðtali sem birtist á heimasíðu McCartney. Þar ræða þær framann, fjölskyldulífið og dýravernd.
https://www.youtube.com/watch?time_continue=1&v=epMaH7RmCZI