Húðflúr hafa lengi verið vinsæl meðal fólks en í dag má nokkurn veginn segja að tískubylgja hafi gengið yfir og margir af þeim sem annars hefðu ekki hugsað sér að fá húðflúr eru komnir með eitt eða fleiri.
Mörgum finnst óhugnanlegt að hugsa til þess að fá sér stórt flúr sem þekur stóran part líkamans og þá er gott að sumir húðflúrarar hafa áhuga á því að gera einföld og lítil flúr sem eru falleg fyrir byrjendur sem og lengra komna.
Ahmet Cambaz frá Istanbul er ein af þeim húðflúrurum sem byrjaði seint að flúra en hafði unnið í sjö ár við að teikna myndir fyrir tímarit í heimalandi sínu.
„Húðflúrin mín eru í örstíl, geómetrísk og bein. Við búum á flóknum tímum og því kýs ég að gera frekar minimalísk verk.“
Hér fyrir neðan er hægt að sjá nokkur af þeim flúrum sem Cambaz hefur gert en hún er einnig á Instagram.
Bored Panda greindi frá.