Íslenska hljómsveitin The Retro Mutants gaf út sína fyrstu plötu í júní síðastliðnum, „The Retro Mutants.“ Hljómsveitina skipa Bjarki Ómarsson, Viktor Sigursveinsson og Arnar Hólm.
„Platan er öll samin með gömlu Retro hljóðunum sem allir þekkja og kynþokkafulla tenór saxófón sólóunum. Þessi plata er samin til að hvetja fólk til að brosa og vekja upp litríka tímabilið,“
sagði Bjarki í samtali við Bleikt í júní.
Nú hefur hljómsveitin gefið út sitt fyrsta tónlistarmyndband við lagið „I Will Be Fine.“ Myndbandið er eins konar kynning á hljómsveitinni en það sýnir uppruna sveitarinnar, hvernig þeir urðu geislavirkir og af hverju þeir eru með grímur.
„Við höfum verið að vinna í þessu myndbandi í sumar. Logi Sigursveinsson sá um leikstjórn og við fengum til liðs með okkur fullt af frábæru hæfileikaríku fólki til að gera þetta myndband sem skemmtilegast fyrir áhorfandann. Við erum virkilega þakklátir öllum fyrir hjálpina sem við fengum,“
segir Bjarki í samtali við Bleikt. Horfðu á myndbandið hér að neðan.
The Retro Mutants ætla bráðlega að halda útgáfutónleika en dagsetning verður tilkynnt síðar. Þeir eru um þessar mundir á fullu að undirbúa atriðið sitt og stefna að því að gefa út annað myndband, jafnvel tvö, áður en þeir kynna nýtt efni.
„Við erum nú þegar byrjaðir að semja og taka upp efni sem við stefnum að gefa út um jólin. Þannig það er alveg hellingur í gangi hjá okkur.“