Listrænn stjórnandi frá New York setti inn færslu á Bored Panda undir notendanafninu Trans Disney. Færslan er hreint út sagt frábær en í henni deilir notandinn myndum af þekktum Disney karakterum.
„Eins og margir aðrir þá ólst ég upp við að horfa á Disney myndir. Ég elska þær og mun alltaf gera það á meðan þær fjalla um ást, frelsi og breytingu (e. transformation),“
skrifar Trans Disney í færslunni. Notandinn bætir því við að þegar hann var að vaxa úr grasi tók hann eftir að það vantaði mjög mikilvægan flokk af fólki í myndirnar: Trans fólk.
„Fólk sem skilur það best af öllum meininguna á bak við ást, frelsi og breytingu og leitina að því. Það er það sem Disney stendur fyrir.“
Trans Disney teiknaði upp Disney karaktera til að sýna hvernig þeir myndu líta út ef þeir væru trans. Sjáðu myndirnar hér að neðan og fögnum fjölbreytileikanum!