Risapandan er ekki lengur í útrýmingarhættu samkvæmt úttekt alþjóðanáttúruverndarsamtakanna IUCN. Risapandan var í útrýmingarhættu frá 1984 þangað til í september í fyrra, en telst nú sem viðkvæm tegund. Þetta þýðir að það eru sífellt fleiri húnar að koma í heiminn. En hefur þú einhvern tíman séð húna? Eða fengið að fylgjast með húna vaxa frá fæðingu?
Ef ekki þá erum við með gleðifréttir! Risapanda í Zoo Atlanta dýragarðinum eignaðist tvíbura sem fengu nöfnin Mei Lun og Mei Huan. Starfsfólk dýragarðsins var duglegt að taka upp myndbönd af litlu krúttunum til að leyfa fólki að fylgjast með vexti þeirra. Í myndbandinu hér fyrir neðan fáum við að sjá húnana nýfædda, svo ótrúlega litla og sæta, og þangað til þeir verða 100 daga gamlir. Ekki alveg jafn litlir en samt alveg jafn sætir!
Þegar húnar eru 100 daga gamlir geta þeir gengið sjálfir um einn metra og vega um 5-6 kíló. Það tekur um tvö ár fyrir húnana að verða sjálfstæðir og geta hugsað um sig sjálfir.