Noah Smith bað kærustuna sína um að giftast sér 16. júlí. Hún sagði já og eru þau rosalega spennt að ganga í það heilaga. Þau vinna bæði við ljósmyndun og hönnun þannig þegar kom að því að taka trúlofunarmyndir þá ákváðu þau að fara aðra leið en venjan er.
Við þekkjum vel þessar „tímarits-trúlofunarmyndir“ sem líta út fyrir að vera það hefðbundna þessa dagana. En þegar við hugsuðum að fara þá leið þá var hvorugt okkar spennt. Það var meira „to-do“ dæmi heldur en að fagna trúlofun okkar og að spegla hversu spennt við vorum að byrja líf okkar saman. Þetta var ekki beint „við“
skrifaði Noah í færslu sem hann deildi á Bored Panda. Þau ákváðu að leyfa hugmyndafluginu og ástríðunni að ráða og gerðu stórskemmtilegar trúlofunarmyndir í svokölluðum 80‘s stíl, eða stíl níunda áratugarins eins og við á Íslandi köllum þennan litríka tíma.
Þau fóru í nytjaverslanir til að versla föt og skemmtu sér konunglega við gerð myndanna. „Við vonum að þið njótið myndanna eins mikið og við gerum!“ Skrifaði Noah. Við hjá Bleikt gerum það allaveganna og vildum einnig að lesendur okkar fá að njóta þeirra. Sjáðu myndirnar hér fyrir neðan!