Fyrrum barnastjarnan Macualay Culkin hefur ekki átt sjö dagana sæla eftir að Home Alone ævintýri hans lauk árið 1992. Óhætt er að segja að Culkin hafi gengið í gegnum ýmislegt síðan þá en í febrúar 2015 birtist mynd af honum á Internetinu sem fékk aðdáendur hans til að standa upp úr sófanum.
Nýjustu fregnir herma að hann sé í sambandi með Jordan Lane Price og búi í París. Hann sást hins vegar í Hollywood fyrr í vikunni og er óhætt að segja að hann sé gjörbreyttur í útliti.
Hann sást með leikkonunni og fyrirsætunni Brenda Song. Þau eru að leika saman í myndinni Changeland, grín-dramamynd sem er skrifuð og leikstýrð af Seth Green.
Eins og maður gæti búist við þá fór Internetið nánast á hliðina við myndbirtinguna. Culkin lítur stórglæsilega út, 36 ára gamall!