fbpx
Laugardagur 22.febrúar 2025

Team Spark kappaksturslið HÍ gefur út heimildarmynd

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Sunnudaginn 16. júlí 2017 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Team Spark er kappaksturslið innan Háskóla Íslands sem ár hvert hannar og smíðar rafknúinn kappakstursbíl frá grunni með það að markmiði að keppa á Formúla Stúdent keppnum úti í heimi. Liðið samanstendur aðallega af verkfræðinemendum Háskóla Íslands en Formúla Stúdent er stærsta verkfræðinema keppni í heiminum. Þangað koma lið frá bestu háskólum í heimi og etja kappi í akstri, hönnun og viðskiptahugmynd á bak við afrakstur vetrarins.

Team Spark Liðið í Formúla Stúdent keppninni í fyrra

Nú á næstu dögum er liðið að fara út með sinn sjötta bíl, TS17 sem ber heitið LAKI, á Formúla Stúdent keppnirnar en í þetta sinn keppir liðið á Formula Student Italy og Formula Student Austria. Mikil tilhlökkun er í liðinu og fyrir áhugasama er hægt að fylgjast með á Facebook síðu liðsins og snapchat aðganginum team.spark.

LAKI

Til að ýta undir spennu fyrir komandi keppnum þá frumsýndi liðið heimildarmynd um árangur liðsins í fyrra en liðinu tókst í fyrsta sinn að taka þátt í aksturhluta keppninnar. Vegna ungs aldurs liðsins verður það að teljast gríðarlega góður árangur vegna þeirra strangra öryggiskrafna sem gerðar eru til rafmagnsbíla á keppnunum. Sjón er sögu ríkari og fékk Bleikt leyfi frá Team Spark til að birta heimildarmyndina. Sturla Holm Skúlason á heiðurinn bak við þessa heimildarmynd.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Lýsa yfir vanþóknun á ósannindum sveitarfélaganna og skora á stjórnarmenn að gera grein fyrir afstöðu sinni

Lýsa yfir vanþóknun á ósannindum sveitarfélaganna og skora á stjórnarmenn að gera grein fyrir afstöðu sinni
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Birtu undarlega færslu þar sem stjarnan sást syngja lag með Ed Sheeran

Birtu undarlega færslu þar sem stjarnan sást syngja lag með Ed Sheeran
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ætla að flytja inn erlendan dómara eftir margar kvartanir

Ætla að flytja inn erlendan dómara eftir margar kvartanir
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

„Ég finn það alveg í dag að um leið og ég set mig í fyrsta sæti og líður vel þá líður börnunum mínum vel“

„Ég finn það alveg í dag að um leið og ég set mig í fyrsta sæti og líður vel þá líður börnunum mínum vel“
EyjanFastir pennar
Fyrir 11 klukkutímum

Óttar Guðmundsson skrifar: Klæðnaður þingmanna

Óttar Guðmundsson skrifar: Klæðnaður þingmanna
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Fimm orð 4 ára drengs leystu 30 ára gamla morðgátu

Fimm orð 4 ára drengs leystu 30 ára gamla morðgátu

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.