Í maí greip nýtt æði íslensk börn og ungmenni, leikfang sem kallast á ensku fidget spinner. Fljótt var leikfangið á boðstólnum í flestum stórverslunum og um land allt og var ekki hjá því komist þegar gengið var um götur bæjarins að sjá nokkrar svona þyrilsnældur eins og sumir vilja kalla þær. Nú er kominn fidget spinner með varasalva. Þú getur þá „spinnað“ og sett á þig varasalva með sömu græjunni, allt saman mjög hentugt. Varan kallast GlamSpin og kemur í verslanir Sephora í ágúst. BuzzFeed Product Labs og Taste Beauty unnu saman að vörunni sem inniheldur þrjá varasalva með ávaxtabragði.
Þú getur verslað GlamSpin í dag á vefsíðu þeirra fyrir um þúsund krónur.