Það hefur verið endalaust drama á milli Robert Kardashian og Blac Chyna nánast síðan þau byrjuðu saman. Þau hafa hætt saman og byrjað saman oftar en við getum talið, verið dugleg að rífast opinberlega á samfélagsmiðlum og lenti einnig oft saman þegar þau voru að taka upp raunveruleikaþáttinn Rob & Chyna. Þegar þau hættu saman í desember síðastliðnum tjáði Rob sig á Instagram og sagði meðal annars að Blac hefði bara verið með honum til að öðlast meiri frægð og peninga. Í kjölfarið tjáði hún sig á Instagram og sagði þar að Rob væri andlega veikur, latur og hún gæti ekki hjálpað honum meira. Rob baðst síðan afsökunar á öllu saman og sagðist ætla að vinna í sínum málum. Þetta er aðeins brot af því sem hefur gengið á og nú hafa hlutirnir stigmagnast verulega.
Í gærmorgun deildi Rob myndum og skilaboðum um Blac á Instagram. Hann deildi meðal annars myndum sem hann hélt fram að væru nektarmyndir af henni. Hann deildi þeim án hennar leyfis og var ein myndin af kynfærunum hennar. Þetta flokkast sem stafrænt kynferðisofbeldi og gæti Robert átt yfir höfði sér sex mánaða fangelsisvist. Hann hefur einnig í fleiri en tíu færslum, ásakaði hana um að halda fram hjá sér með mörgum karlmönnum. Einn af þeim sagði Rob vera að reyna að kúga sig. Rob hélt því einnig fram að Blac væri búin að fara í lýtaaðgerðir fyrir yfir hundrað þúsund dollara.
Rob deildi einnig myndbandi af Blac vera að kyssa annan mann en Rob sagði að Blac hafði sent honum myndbandið á þjóðhátíðardag Bandaríkjanna þann 4. júlí síðastliðinn, stuttu eftir að Rob og Blac sváfu saman að hans sögn. Hann var ekki sáttur við að fá myndbandið og jós úr skálum reiði sinnar á Instagram.
Blac Chyna tjáði sig á Snapchat í kjölfarið og sakaði Rob um heimilisofbeldi.
Rob þú gerðir allt þetta en þú lamdir mig og reynir að láta eins og ekkert hafi gerst! Þú lagðir hönd á mig ég sver til Guðs! Á krakkana mína en ég á að þegja því þú ert Kardashian,
skrifaði hún á Snapchat.
Instagram aðgangur Rob var gerður óvirkur en hann færði sig þá yfir á Twitter og hélt þar áfram. Hann sagði að ástæðan af hverju Blac var með honum til að byrja með var til að gera Tyga afbrýðisaman. En Tyga og Blac eiga barn saman og voru í sambandi áður en Tyga byrjaði með Kylie Jenner, systir Rob. Kylie og Tyga hættu saman í mars á þessu ári eftir þriggja ára samband.
Since Instagram shut me down everyone peep my twitter lol
— ROBERT KARDASHIAN (@robkardashian) July 5, 2017
My bed that my child lays in and she gave the robes I got to all her dudes in my house that I pay for. Lol smh
— ROBERT KARDASHIAN (@robkardashian) July 5, 2017
Today Chyna sent me a video after I just bought her 250K of jewelry and she sends me this video… of another man in our bed pic.twitter.com/3rE4luXilJ
— ROBERT KARDASHIAN (@robkardashian) July 5, 2017
But yes when ur girl leaves u after u spent 100K on her body to get done and then leaves u after have a baby girl who is only a few months
— ROBERT KARDASHIAN (@robkardashian) July 5, 2017
Just sad. Loved Chyna as my wife and accepted all the wrong she did and continued to ride for her and remain Loyal to her. Never did I cheat
— ROBERT KARDASHIAN (@robkardashian) July 5, 2017
But she couldn’t remain loyal and cheated and fucked way too many people and she got caught and now this is all happening and it’s sad
— ROBERT KARDASHIAN (@robkardashian) July 5, 2017
We had a beautiful baby girl that was the best thing that’s happened to me and soon as that baby was born Chyna was out.
— ROBERT KARDASHIAN (@robkardashian) July 5, 2017
Soon as kylie and tyga broke up Chyna was over the game. She had a baby out of spite and I’ll never view her the same.
— ROBERT KARDASHIAN (@robkardashian) July 5, 2017
Myndirnar sem Rob deildi af Blac Chyna voru myndir sem hún sendi honum í einkaskilaboðum. Hann deildi þeim á Instagram án hennar leyfis og gæti verið kærður fyrir stafrænt kynferðisofbeldi en slíkt er refsivert samkvæmt lögum í Kalíforníu þar sem þau búa. Hann gæti átt yfir höfði sér sex mánaða fangelsi. Það er ekki komið á hreint hvort Blac ætli að kæra hann en samkvæmt People segir lögmaður Blac Chyna að hún sé að skoða alla möguleika.