Þessi taívanska fjölskylda er mögulega unglegasta fjölskylda sem við höfum séð. Fyrst kom innanhúshönnuðurinn og tískubloggarinn Lure Hsu öllum á óvart með unglegu útliti sínu en hún er 41 árs.
Útlit hennar vakti mikla athygli og það tók ekki langan tíma fyrir netverja að átta sig á því að hún er ekki sú eina í fjölskyldunni sinni sem er svona ungleg. Lure á tvær systur, Sharon 36 ára og Fayfay 40 ára. Báðar líta einnig út fyrir að vera helmingi yngri en þær eru.
Dæturnar fengu þetta unglega útlit frá móður sinni en þú átt aldrei eftir að geta giskað á aldur hennar með því að horfa á mynd af henni. Hún er í miðjunni á myndinni hér fyrir neðan.
Hún er 63 ára, ótrúlegt en satt! Fjölmiðlar í Taívan kalla mæðgurnar „the family of frozen ages.“
Hvað er leyndarmálið á bak við þetta ótrúlega unglega útlit? Í viðtali við taívanskt tímarit sagði Lure að lykillinn að unglegu útliti er að drekka nóg af vatni og borða grænmeti. Hún benti einnig á mikilvægi þess að að nota rakakrem.
„Þegar húðin þín er með nóg af raka þá þarftu ekki einu sinni að hafa áhyggjur af því að eldast og fá hrukkur,“
sagði Lure. Fayfay mælti einnig með því að drekka nóg af vatni og stórt volgt vatnsglas á hverjum morgni.
„Ég hef gert það í meira en áratug. Ég drekk frá 350ml til 500ml.“
Þarna höfum við það! Samkvæmt þessum unglegu taívönsku konu þá er leyndarmálið að unglegu útliti einfalt, vatn!