fbpx
Föstudagur 19.júlí 2024

Kylie og Kendall Jenner harðlega gagnrýndar: „Haldið ykkur við það sem þið kunnið, varagloss“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 30. júní 2017 11:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kendall Jenner og Kylie Jenner hafa verið harðlega gagnrýndar fyrir nýju fatalínuna sína. Þær hafa gefið út yfirlýsingu í kjölfarið þar sem þær biðjast afsökunar.

Raunveruleikastjörnurnar settu mynd af andlitunum sínum á „vintage“ boli með tónlistargoðsögnum eins og Notorious B.I.G., Tupac, Pink Floyd og Ozzy Osbourne. Bolirnir vöktu hörð viðbrögð og fordæmdu margir systurnar fyrir að setja andlitin sín yfir þekktu tónlistargoðin. Á meðal þeirra sem gagnrýndu systurnar voru Sharon Osbourne og móðir Biggie, Voletta Wallace.

„Ég er ekki viss hver sagði Kylie Jenner og Kendall Jenner að þær mættu gera þetta. Óvirðingin að tala ekki einu sinni við mig eða einhvern tengdan búinu gerir mig ráðþrota. Ég hef ekki hugmynd af hverju þeim finnst í lagi að hagnast á dauða 2pac og sonar míns Christopher. Þetta er óvirðing og ógeðslegt!“ Skrifaði Voletta í færslu á Instagram.

Sharon Osbourne skrifaði á Twitter: „Stelpur. Þið hafið ekki unnið ykkur rétt til þess að mega setja andlit ykkar á myndir með tónlistargoðsögnum. Haldið ykkur við það sem þið kunnið – varagloss.“

Bolirnir hafa verið teknir úr sölu og bæði Kendall og Kylie gáfu út yfirlýsingu á samfélagsmiðlum þar sem þær báðust afsökunar.

Hvað finnst þér um bolina?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Manchester United skellir verðmiða á McTominay

Manchester United skellir verðmiða á McTominay
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Arteta horfir til San Sebastian – Með augastað á þremur leikmönnum

Arteta horfir til San Sebastian – Með augastað á þremur leikmönnum
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Baldvini blöskrar umfjöllun um sig – „Það sauð hvergi uppúr“

Baldvini blöskrar umfjöllun um sig – „Það sauð hvergi uppúr“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Sjáðu óhugnanlega mynd: Frægur maður nær óþekkjanlegur eftir slagsmál

Sjáðu óhugnanlega mynd: Frægur maður nær óþekkjanlegur eftir slagsmál
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Harmleikurinn í Bangkok: Leysti úr fjölskylduerjum með því að drepa sig og fimm aðra með blásýru

Harmleikurinn í Bangkok: Leysti úr fjölskylduerjum með því að drepa sig og fimm aðra með blásýru
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Frægur einstaklingur fór vel yfir strikið: Hótaði manninum öllu illu – ,,Ég er að koma að rífa úr þér tennurnar og berja þig“

Frægur einstaklingur fór vel yfir strikið: Hótaði manninum öllu illu – ,,Ég er að koma að rífa úr þér tennurnar og berja þig“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.