Colorista hárvörulínan frá L’Oréal er loksins komin til landsins. Colorista er stórglæsileg hárvörulína sem inniheldur allt frá permanent litum yfir í svokallaða washout liti sem skolast út eftir nokkra þvotta ásamt spreyjum og æðislegum pökkum til að gera dásamlegar balayage strípur eða tryllt ombré.
Colorista Washout litirnir skolast úr hárinu eftir um það bil eina eða tvær vikur. Það eru 10 æðislegir litir í boði svo því er hægt að leika sér með liti án skuldbindingar. Ásamt Washout litunum kemur einnig í sölu svokallað Fader shampó sem hjálpar hárinu að losna við litinn fyrr sé þess óskað. Hvaða lit hefur þig alltaf langað til að prófa en aldrei þorað?
Hér fyrir neðan má sjá hvernig þetta virkar:
https://www.youtube.com/watch?v=Seab3nsaQj4