Þetta gæti verið með því krúttlegasta sem þú horfir á í dag, jafnvel í vikunni. Í nýlegri auglýsingu fyrir barnastöð BBC, Cbeebies, var spurt nokkur vinapör hvernig þau eru frábrugðin hvort öðru. Svörin þeirra sýna það svo sannarlega að börn sjá heiminn öðruvísi en fullorðnir.
Auglýsingin hefur vakið mikla athygli og hafa yfir 29 milljón manns horft á myndbandið.