Það er hægt að gera magnaða hluti við hár og sumir geta breytt sínum í listaverk og skúlptúr. Laetitia KY er 21 árs fatahönnuður frá Abidjan í Afríku sem hefur vakið mikla athygli fyrir hárið sitt. Laetitia deilir myndum af sínu hári á Instagram en innblásturinn fékk hún eftir að skoða hárgreiðslur hjá mismunandi ættbálkum í Afríku. Hér fyrir neðan eru nokkur af hennar hárlistaverkum sem sum tók margar klukkustundir að gera.