Nú þegar sólin er farin að láta sjá sig og margir komnir með smá lit er tilvalið að nota léttari farða á daginn. Glam Beige Healty Glow línan frá L‘Oreal er fullkomin fyrir sumartímann en þetta eru dásamlegar vörur með létta og náttúrulega áferð. Glam Beige Healty Glow Foundation er litað dagkrem sem er fáanlegt í tveimur litatónum. Farðinn inniheldur SPF 20 til að vernda húðina fyrir hættulegum geislum sólarinnar og gefur húðinni fallegan sólkysstan lit. Sólarinnar. Glam Beige Healthy Glow púðrið má nota á allt andlitið eða á hápunkta þess til þess að fá fallegan sólbrúnan lit. Áferð púðursins er einstaklega létt og minnir helst á satín.