Kim Kardashian West og Kanye West ætla að stækka fjölskyldu sína með aðstoð staðgöngumóður. Fyrir eiga þau tvö börn, North (4 ára) og Saint (18 mánaða). Það hefur fengið staðfest að Kim og Kanye hafa nú þegar fundið staðgöngumóður en ekki er vitað hvar í ferlinu þau eru, eða hvort hún sé nú þegar orðin ófrísk.
Kim hefur talað mjög opinskátt um barneignir sínar í raunveruleikaþætti fjölskyldunnar Keeping Up With the Kardashians en í nýjustu þáttaröðinni var sýnt þegar læknir tilkynnti Kim að hún gæti ekki tekið áhættuna á að ganga með annað barn, hún þyrfti að fá staðgöngumóður til þess að gera það fyrir sig. E! sagði frá þessum gleðifréttum í morgun en í gær fagnaði Kim nýju snyrtivörulínunni sinni KKW beauty umkringd fjölskyldu og vinum.