Það vakti athygli um helgina að fótboltamaðurinn knái Eiður Smári mætti einn síns liðs í brúðkaupsveislu þar sem Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, gekk að eiga Kristbjörgu Jónasdóttur athafnakonu.
Uppi varð fótur og fit í kreðsum einhleypra kvenna því Eiður þykir vissulega huggulegasti maður, hann er með heilbrigðan skeggvöxt og eflaust í prýðilegu formi. Eiður er heldur enginn fátæklingur.
Smartlandið birti rétt í þessu frétt um að sögusagnirnar væru réttar, að Eiður Smári og Ragnhildur Sveinsdóttir væru skilin. Parið var saman í heil 23 ár – sem verður að teljast ansi gott – enda er alls enginn ósigur fólginn í skilnaði. Góðir hlutir geta líka runnið sitt skeið!
Bleikt óskar Eiði, Ragnhildi og börnunum þeirra fjórum alls velfarnaðar í framtíðinni og sendir að sjálfsögðu 18000 ósýnilega einhyrninga glimmerskreytta fljúgandi í áttina að þeim. Lifi ástin!