fbpx
Föstudagur 19.júlí 2024

Kylie Jenner og Travis Scott fá sér parahúðflúr

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 14. júní 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kylie Jenner og rapparinn Travis Scott hafa verið að hittast síðan í apríl. Kylie og Tyga fyrrverandi kærasti hennar hættu saman í mars eftir um þriggja ára samband og stuttu seinna fóru sögusagnir að ganga að hún væri að slá sér upp með Travis. Þau fóru að sjást sífellt oftar saman í kjölfarið, eins og í fremstu röð á körfuboltaleik og hönd í hönd á Coachella. Kendall Jenner, systir Kylie, deildi nýlega mynd á Instagram þar sem hún situr við sundlaug og Travis Scott er í sundlauginni. Maður sér ekki andlitið á þeim sem er í sundlauginni en Kendall merkti Travis inn á myndina eins og sést hér fyrir neðan. Það má því álykta að hann sé byrjaður að vera í kringum fjölskyldu Kylie og sambandið orðið alvarlegt.

Mynd/Instagram @KendallJenner

Samkvæmt nýjustu fréttum hafa Kylie og Travis tekið sambandið á næsta stig en þau fengu sér eins húðflúr á ökklann, lítið fiðrildi. Þau deildu bæði mynd af húðflúrinu sínu á Snapchat.

Nýlega gaf Travis út lag sem heitir „The Butterfly Effect,“ spurning hvort það séu einhver tengsl þar á milli. Samkvæmt E! News gæti „fiðrildi“ einnig verið gælunafn Travis fyrir Kylie. Ef húðflúrin þeirra eru einhver vísbending þá lítur út fyrir að þau séu mjög hrifin hvort af öðru og að hann sé mögulega nýjasta viðbótin við Kardashian-Jenner klanið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Mía sér um afþreyingu fyrir börnin

Mía sér um afþreyingu fyrir börnin
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Baldvini blöskrar umfjöllun um sig – „Það sauð hvergi uppúr“

Baldvini blöskrar umfjöllun um sig – „Það sauð hvergi uppúr“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Sannfærðir um að stjarnan sé alveg búin að missa vitið: Birti stórfurðulegt myndband – Nýlega dæmdur fyrir að yfirgefa fjölskylduna

Sannfærðir um að stjarnan sé alveg búin að missa vitið: Birti stórfurðulegt myndband – Nýlega dæmdur fyrir að yfirgefa fjölskylduna
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Neyðarleg rangfærsla á versta tíma og ráðuneytið svarar ekki spurningum um málið

Neyðarleg rangfærsla á versta tíma og ráðuneytið svarar ekki spurningum um málið
Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Kona var skotin til bana, óvopnuð á sínu eigin heimili, af lögreglumanninum sem átti að vernda hana

Kona var skotin til bana, óvopnuð á sínu eigin heimili, af lögreglumanninum sem átti að vernda hana

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.