Leikkonan Demi Moore sagði frá því í þætti Jimmy Fallon á mánudaginn að hún hafi nýlega misst tvær framtennur. Jimmy sýndi gestum þáttarins mynd þar sem það vandaði í hana eina tönn en ástæða þess að Demi sagði frá þessu er að margir gætu lent í því sama.
Demi sagði að það væri væntanlega meira töff að segja að þetta hafi gerst þegar hún hafi verið á hjólabretti, en svo hafi ekki verið. Hún missti tvær framtennur vegna streitu. Þetta kom mörgum á óvart enda vita ekki allir að stress geti haft þessar afleiðingar. Demi sagði einnig í þættinum að dætur sínar væru ánægðar með þetta nýja útlit móður sinnar því tannleysið léti hana virka viðkvæmari og meira mannlega.