Förðunarfræðingur frá Los Angeles hefur valdið miklu fjaðrafoki eftir að hafa breytt hvítri konu í svarta. Förðunarfræðingurinn kallar sig Paintdatface á Instagram þar sem hann er með um 72 þúsund fylgjendur. Myndin sem hann deildi vakti reiði meðal netverja og hefur hann nú eytt upprunalegu færslunni, en vissi greinilega að hún mundi vekja hörð viðbrögð.
„Þetta er umbreyting sem ég hef beðið í dágóðan tíma með að deila. Aðallega því ég er hræddur um að fólk snúi þessu í kynþáttaskandal gegn mér,“
skrifaði hann með myndinni. „Þetta snýst ekki um kynþáttabreytingu. Þetta er um eina konu sem er að viðurkenna og fagna fegurð menningar annarrar konu.“
„Í alvöru paintdatface? Viltu fagna menningu svartra? FÁÐU SVARTA FYRIRSÆTU! Þetta er greinilega blackface, „fyrirvarinn“ þinn breytir engu“
sagði einn netverji á Twitter.
📞Hello Paintdatface ….. WOC called and we want our MELANIN back 😡 #appropration #blackface #BlackGirlsAreMagic @LegendaryRootz pic.twitter.com/jRFaSlxzXG
— FancyFallonMua (@fancyfallonmua) May 28, 2017
This has just pissed me offfffffffffffff. This is NEVER ok to do. MUA Paintdatface, why would you think it was ok to do this? pic.twitter.com/tOG6QrvzXC
— Danielle (@VanierDanielle) May 28, 2017
Really paintdatface? You want to celebrate black culture? GET A BLACK MODEL! This is clearly blackface, your „disclamer“ doesn’t change that https://t.co/p724ZDtajK
— Nessa (@vanessago_89) May 29, 2017
#paintdatface What you did is called Blackface. So you’re bored? Read a book! We are not a fashion you put on and take off when convenient.
— Jem (@JemClassic) May 30, 2017
Paintdatface eyddi myndinni en setti hana aftur inn með nýjum texta undir þar sem hann útskýrði myndina frekar en að biðjast afsökunar.
„Mynd sem ég deildi nýlega af konu sem ég breytti í konu af annari menningu hefur verið harðlega gagnrýnd af þeim sem skilja ekki skilaboðin,“
skrifaði hann. „Ég eyddi myndinni, ekki af því að ég sá eftir þessu eða fannst ég hafa gert eitthvað rangt, heldur því samfélagsmiðlar hafa gert hana neikvæða.“ Sjáðu færsluna hans í heild sinni hér fyrir neðan.